Jæja þá er komið að uppgjöri ársins
2006, heill hellingur hefur gerst mis mikilvægt. Í skólinn gekk
bara alveg ljómandi vel. Bekkurinn minn er alveg frábær hópur af
mis ólíkum einstaklingum.
Sumarið er tíminn söng Bubbi. En sumar
hvers, geðveikrar vinnu, að minnnnnnsta kosti var það þannig hjá
mér, það lá við að ég missti vitið.
Að vísu var hann Björn faðir minn svo
yndislegur að gefa mér útlandadsferð í afmælisgjöf. Við Álfrún
systir skelltum okkur til Baunalands, ferðinni var heitið til
Skagen sem virðist vera á hjara veraldar amk í lest. Þar vorum við
í góðu yfirlæti hjá elstu systu okkar Heidi og fjölskyldu hennar.
Þetta var í raun fyrsta tækifæri mitt til að kynnast henni, þar sem
að við höfum aldrei átt neinn tíma saman og eins og ég hélt þá er
þetta frábær fjölskylda. Yndislegar stundir á
Skagen
Síðan var ákveðið að stoppa við í
Kaupmannahöfninni, þar sem að við Þórður bróðir hittumst og fengum
gistingu hjá honum Bjögga mínum. Takk fyrir það minn kæri, skulda
þér gistingu. Áætlunin var að djamma geðveikt en síðan var endað í
nammi áti og video glápi og leti, en engu að síður var þetta
geðveikt gaman. Stelpan fékk uppfylltan langþráðan draum að sjá
Eastegade, sá fyrir mér götu fulla af portkonum og furðulegu fólki
en úff mikið varð ég fyrir vonbrigðum. Þetta gerist víst bara á
kvöldin.
Við systkinin skelltum okkur svo í
Tivolíð, ég fékk útrás fyrir adrenalín fíkn mína og brósi stóð á
kantinum með töskuna mína, (afskaplega loðinn og með
kvennmannstösku) kannski að adrenalín genin komi ekki úr þessari
fjölskyldu.
Ég afrekaði að fara í tvær útilegur í
sumar með familíunni, hefði þó viljað fara í fleirri þetta að
fara í útlegur er lífstíll, það er sko málið hverjum tekst að koma
sér sem best fyrir á tjaldstæðinu, grilla besta matinn og skemmta
sér best.
Í haust ákvað ég að finna mér nýtt
hobbý, það er víst svo gaman að veiða. Já eða ekki við vinkonurnar
skelltum okkur í veiði, veðrið var brjálað það var ekki stætt úti
og við blautari en allt sem blaut er, en samt vorum við sko ekki að
gefast upp. Árangurinn var ein sardína sem ekki einu sinni
hefðarkettirnir á Laugarteig hefðu litið við. María Anna átti
heiðurinn af þeirri veiði. En við Guðný áttum ekki séns í þennan
afla.
Í september var aftur stigið upp í flugvél
og ferðinni heitið til Flórída. Vinkona mín og bekkjarsystir bauð
mér með fjölskyldu sinni. Við bjuggum í svaka húsi með sundlaug og
alles. Vísa kortið fékk sko að finna fyrir því, enda er allt til í
ammeríkunni. Enn og aftur fékk ég útrás fyrir adrenalin fíknina.
Allir rússíbanar voru þræddir lungun fengu svo að þenja sig.
(
http://www.buschgardens.com/BGT/ar_sheikra.aspx)
Fyrsta skiptið upplifanir voru líka
nokkrar. Flugferð í loftbelg, þetta er það frábærasta sem að ég hef
gert um æfina, algör þögn þarna uppi og síðan er bara svifið og
útsýnið, sólarupprás í Orlando er sko falleg sjón. Í ammeríku
hittið ég minn betri helming, mitt innra sjálf og það var enginn
annar en herra Guffi, en hann býr í hamingjulandi
þar sem að allir eru glaðir endalaust og satt að segja óþolandi
glaðir heheh. Já við fórum á veitingahús Red Lobster og átum RISA stóran
humar, þurftum meira að segja hjálp við að borða hann, eða opna
hann þykk skel að þessum asskotum. Já og hey ég sá geimskot hversu
margir hafa séð geimskutlu fara á loft þetta var nú samt bara rák á
himni en gaman að geta sagts hafa séð geimskot
já og prófaði að
hoppa í laugina í öllum fötunum, það er bara blautt og ekkert
spes.
Annars eru vonbrigðin ekki mörg þegar
ég lít yfir árið nema kannski að í fyrsta skiptið í guð einn veit
hve mörg ár missti ég af réttunum, og þar af leiðandi líka af
kjötsúpunni hennar Leifu minnar í sveitinni. Það að fara í
réttirnar er alveg nauðsynlegt og í raun eitt af því skemmtilegasta
sem að ég geri á hverju ári 
Annars hefur lífið gengið sínn vana
gang hér hjá mér skóli verkefnavinna og stress. Þökk sé foreldrum
mínum þá ligg ég núna á sundlaugarbakka með sólina í andlitinu og
spanjólana hangandi yfir mér og þakka guði fyrir frábært ár

Þannig að héðan úr sólinni sendi ég
ykkur mínar bestu óskir um ...
GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI
ÁR
.....
já og þakka allar frábærar stundir á
liðnu ári.
jóla - Knús SaraN á
Kanarí 